12júní

Barnanet

Erum búin að opna barnanetssíðu fyrir litla kút Koss

Slóðin er www.barnanet.is/litligaur

Hún er öll í vinnslu og alls ekki fullkláruð en við ætlum nú að reyna að vera dugleg að setja reglulega inn bumbumyndir og bæta við myndum af vinum og fjölskyldu.

Annars erum við komin í Ólafsfjörðinn og verðum hér í sumar. Leikjanámskeiðið byrjar í næstu viku og svo erum við byrjuð að vinna sem framkvæmdastjórar Leifturs + þjálfa einn flokk. Gengur semsagt ljómandi vel.
Tengdó eru úti á Mallorca og við erum hérna í risahúsinu með Evu og Steina ... búið að vera mjög notalegt hjá okkur og kemur til með að vera það áfram Hlæjandi Í gær þrifum við pottinn hátt og lágt og létum renna nýtt vatn í hann...núna vorum við svo að koma úr honum og erum að fara að fá okkur eitthvað gott í gogginn Brosandi

Á laugardaginn er ég svo að útskrifast sem leikskólakennari. Ég verð  nú samt því miður ekki viðstödd svo ég fæ bara allt sent í pósti Brosandi

Jæja farin að næra mig..
Jóka húsmóðir

12. júní 2008 klukkan 16:27
Jóhanna Smáradóttir
6 athugasemdir
03júní

Nýjar bumbumyndir..

JÁHÁÁÁ...

Og þið sem kíkið endilega kommentið...enga feimni! Hlæjandi

Jóka og prinsinn
03. júní 2008 klukkan 21:10
Jóhanna Smáradóttir
5 athugasemdir
27maí

Prinsessan..

..breyttist í lítinn PRINS!!
Við gátum ekki annað en hlegið þegar að við fórum í sónar í dag og við okkur blasti þessi risapungur og pippalingur!! Ég sem hafði hugsað mér að láta þetta koma mér á óvart en William vildi sko fá að vita. Ég komst því miður ekki hjá því að sjá þetta en finnst það sko bara allt í lagi núna Hlæjandi

Vildi bara segja ykkur fréttirnar..ætla að horfa á kompás..

Jóka og prinsinn
27. maí 2008 klukkan 21:54
Jóhanna Smáradóttir
7 athugasemdir
21maí

Sumarið er tíminn..

..og núna má það sko koma Svalur

Þriggja ára skólagöngu minni í Kennó er lokið...þetta er búið að vera svo fljótt að líða að það er bara ótrúlegt. Ég man eins og það hafi gerst í gær þegar að ég fékk bréf um að ég væri komin inn í skólann og þá þýddi ekkert annað en að slá til og kanna málið. Hafði aldrei unnið á leikskóla og sótti bara um á síðasta degi umsóknar í gamni mínu og verð nú að viðurkenna að ég sé ekki eftir neinu núna. Ætlaði hins vegar að halda áfram og taka grunnskólakennarann líka - jafnvel bara íþróttakennarann...en ákvað að taka pásu á námi víst að ég varð ólétt Glottandi

Annars gengur allt ljómandi vel. Er mætt í vinnu aftur í grunnskólanum og bumban er sko knúsuð og kysst alla daga af dömunum í bekknum. Það er bara æði! Er núna komin 27 vikur og 3 daga..jáh þetta líður og já ég fer að taka myndir fyrir ykkur Glottandi

Ég er nú alltaf samt á þvælingi og er að fara norður um helgina. Hlakka mikið til að hitta alla...þá sérstaklega nýju stúlkuna þeirra Heiðars og Júlíu hana Anítu Lind  og svo að sjálfsögðu Kareni Helgu sem stækkar og stækkar sýnist mér á myndunum Koss

William fór í dag og svo ætlum við að keyra saman heim á sunnudaginn...hefði svo verið til í að fara með honum í dag en samviskan sagði nei...er búin að fá nóg frí útaf skólanum svo að ég fæ far með öðrum á föstudaginn eftir vinnu Brosandi

Síðan eru bara 2 vikur í að við flytjum norður í tvo mánuði! Við ætlum að vera saman með leikjanámskeið fyrir börn svo það verður mikið fjör. Ég er einmitt að fara klára auglýsinguna sem kemur í búðina, íþróttahúsið og sjoppuna á óló á morgun ... bara svona fyrir ykkur sem eigið börn og hafið áhuga Hlæjandi


Jæja..kominn tími á að gera eitthvað...
JS

21. maí 2008 klukkan 20:31
Jóhanna Smáradóttir
Engin athugasemd
14maí

BÚIN Í PRÓFUM KENNARAHÁSKÓLA ÍSLANDS!!

jæja..var að koma heim úr síðasta prófinu og gekk bara þokkalega ...eins og ég segi mjöööög oft eftir próf... ,,ég næ þessu allavegana" Svalur

Annars fékk ég í gærkvöldi alveg geggjaða einkunn fyrir lokaritgerðina mína... hvorki meira né minna en 9,5 !!!! Hlæjandi 
Var eiginlega bara í sjokki eftir að hafa séð þetta og átti erfitt með að einbeita mér af lærdóm í gærkvöldi!!

Er núna búin að vera að fá mér að borða í RÓLEGHEITUNUM -  hef ekki verið róleg síðan ég veit ekki hvenær! Ætla síðan bara að fara að dunda mér að pakka niður og svo klukkan 13 fer ég í plokkun og litun Koss Í kvöld er það svo bara flug suður!

Á morgun er síðan generalprufa fyrir fyrirlesturinn og sýninguna sem verður haldin á föstudaginn!

Miiiiiikið verður ljúft þegar að þetta verður loksins allt saman búið! Er samt ekki alveg að trúa því....

Þið sem eruð ekki búin..gangi ykkur bara vel Koss

Jæja..farin að pakka niður - JS

14. maí 2008 klukkan 11:11
Jóhanna Smáradóttir
4 athugasemdir
13maí

Á morgun...

... fer ég í mitt síðasta próf frá Kennaraháskóla Íslands!!! Svalur

Er búin að vera að lesa síðan 9 í morgun - með smá pásum auðvitað!

Díííí..hvað ég hlakka til !!! Hlæjandi

Eitt enn áður en ég held áfram..er búin að fá tvær einkunnir sem ég kann bara nokkuð að meta - 8,0 og 8,5!Ullandi

Kveðjur JS
13. maí 2008 klukkan 13:20
Jóhanna Smáradóttir
Engin athugasemd
07maí

Æj sorry..

..elsku Selma mín og fleiri ;)

Núna er ég bara byrjuð að læra fyrir allra síðasta prófið mitt fyrir útskrift og almáttugur hvað ég get ekki beðið eftir að labba út úr prófinu á miðvikudaginn! Sat einmitt á pallinum í dag að læra til að fá smá lit á kroppinn fyrir borgarferðina..jújú eftir prófið á miðvikudaginn fer ég beint í litun og plokkun og um kvöldið flýg ég suður. Á fimmtudeginum er svo generalprufa fyrir sýninguna og fyrirlesturinn sem við eigum að flytja á föstudeginum 16 maí. Hlæjandi

Á morgun er ég hins vegar að fara í klippingu og litun og guð minn almáttugur hvað ég er búin að hlakka til. Ég er orðin eins og gömul tuska..Gráta

Willi var síðan svo yndislegur að gefa mér tíma í meðgöngunudd á NordicaSpa og er ég nú þegar búin að panta tíma :) Maður fær að fara í heilsulindina líka svo ég ætla að byrja að fara í hana og hitta hana Halldóru mína sem ég hef ekki hitt í langan tíma!! Það verður náttúrulega bara toppurinn að slaka aðeins á eftir þessa skólatörn og hitta snillinginn Svalur

Er ekki búin að sofa neitt voðalega vel síðustu tvær nætur og í morgun byrjaði ég að finna verk neðst í bakinu Öskrandi Hef síðan ekkert fundið eftir hádegi í dag svo ég held að þetta sé nú bara eðlilegt. Kúlan hefur stækkað alveg helling og er fólk að spyrja hvort ég sé farin að borða lyftiduft!! Ég verð að fara að taka myndir fyrir ykkur og held að við stefnum bara að því að taka þær á morgun ...eftir klippinguna Koss

Jæja..ætla að segja þetta gott og skella mér í bað Ullandi
07. maí 2008 klukkan 20:27
Jóhanna Smáradóttir
11 athugasemdir
28apríl

Afsakið hlé..

Fyrirgefiði hvað ég hef verið löt að blogga.
Er núna í matarpásu í heimaprófi!! Er búin að borða mikið og skoða mörg skemmtileg blogg! Svalur

Heilinn er að fara aftur í gang og verð því að blogga síðar!

Tek inn 24 vikna bumbumyndir í dag og set inn fljótlega..kannski að ég muni eftir að biðja Willa um taka þær í þetta skipti :)


Prófkveðjur,
JS
28. apríl 2008 klukkan 12:47
Jóhanna Smáradóttir
4 athugasemdir
18apríl

MENN VIKUNNAR...

...eru klárlega Draupnir Rúnar og Eyþór Ingi!
Draupnir Rúnar, snillingur með meiru, kom bæjarbúum og fleirum mjöööög svo á óvart þegar að hann birtist í eurovisionmyndbandinu í ár. Almáttugur hvað ég hef hlegið og skemmt mér yfir þessu myndbandi. Allir bæjarbúar eru að tala um það og ég held satt best að segja að ÖLLUM líki vel við  hann Draupni - sem kemur mér svosem EKKERT á óvart Svalur Hann er svooo frábær og ég er bara að vona að hann skelli sér á sviðið með þeim úti..það myndi TOPPA ALLT!!!

Eyþór Ingi sigraði Bandið hans Bubba...eins og ég var búin að segja frá því að ég heyrði í þessum dreng!! Guð minn almáttugur hvað hann er flottur söngvari!! Mér fannst samt Arnar líka frábær og Thelma líka!! Glottandi

Annars er allt gott að frétta héðan úr sæbakkanum. Lífið gengur sinn vanagang og ég trúi því ekki ennþá en ég er búin með fyrstu LOKARITGERÐINA mína og fer hún í póst á mánudaginn..get hreinlega ekki verið sáttari eins og er!
Veðrið er búið að vera unaðslegt og sólin dreeeeeegur mann gjörsamlega framúr á morgnanna. Núna fer óléttan að segja til sín og sundspékúleringar komnar upp í hugann, já ég segi það satt sunddrottningin er á leiðinni!!

Er að spá í að horfa á eina mynd með Willa mínum fyrir svefninn.

Eigiði góða helgi í sólinni Svalur  - ís í vél er kominn í Olís ...mmmm
18. apríl 2008 klukkan 22:40
Jóhanna Smáradóttir
1 athugasemd
15apríl

HVORUGKYN!!

Þá er taka þrjú búin og myndin af höfðinu TÓKST - en kynið er enn óvíst. Það er bara EKKERT vitað hvort þetta er...það er nú alveg týpískt þegar að maður ætlar að fá að vita!! Óákveðinn Við Willi löbbuðum út úr sónarnum og sögðum bæði ,,mér fannst þetta vera strákur núna" Hissa

Er núna búin að vera að spjalla við vinkonur mínar og þær eru ennþá bara fastar á því að þetta sé stelpa. En við ætlum bara að láta þetta koma í ljós við fæðingu líklegast Glottandi


Vildi bara segja ykkur nýju fréttirnar Hlæjandi
Jóka og hvorugkynið!

15. apríl 2008 klukkan 14:00
Jóhanna Smáradóttir
5 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...